BUY NOW

Næsta stúlkan

Deborah Jenkins vefur kápunni þéttar að sér í úrhellinu þennan stutta spöl sem hún þarf að ganga heim til sín. En hún kemst ekki heim til sín þetta kvöld. Og hún sést aldrei framar … 

Fjórum árum síðar er reifarstrangi skilinn eftir á þrepi, ungbarn sem enginn veit deili á. Lögreglunni berst símtal og röddin á hinum enda línunnar hvetur til þess að DNA próf sé gert á barninu. Niðurstöðurnar eru sláandi. 

Ungbarnið tilheyrir Deboruh. Hún er enn á lífi. 

Næsta stúlkan er fyrsta bókin í glæpasagnaseríu um rannsóknalögreglukonuna Ginu Harte. Carla Kovach, höfundur seríunnar, hefur slegið í gegn um alla heim með grípandi, margradda söguþræði, hrífandi persónusköpun og margslungnum fléttum. Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson fara á kostum ásamt öðrum lesurum.