HENNAR HINSTA STUND
Enginn veit hvað á sér stað bak við luktar dyr …
Melissa er hin fullkomna eiginkona og móðir. Hún hefur búið sér draumaheimilið í kyrrlátu úthverfi og sér ekki sólina fyrir dóttur sinni. Lífið gæti ekki verið bjartara.
En ekki er allt sem sýnist.
Eitthvað er bogið við heimili Melissu. Sumir nágrannanna segja að hún haldi framhjá eiginmanninum. Aðrir segja að hún drekki of mikið. Það slær enga þögn á slúðrið nóttina sem sírenuvælið vekur hálft hverfið, þótt Melissa muni ekki segja orð framar. Hún er dáin.
Carla Kovach er lesendum kunnug fyrir skáldsöguna Næsta stúlkan, fyrstu bókina þar sem rannsóknarlögreglukonan Gina Harte er í aðalhlutverki. Hún snýr aftur í Hennar hinsta stund sem er einstaklega grípandi spennutryllir með óvæntri fléttu sem heldur lesendum á tánum allt til endaloka.
© 2025 Storyside (Hljóðbók): 9789180853804
© 2025 Storyside (Rafbók): 9789180853811
Þýðandi: Nuanxed / Berglind Þráinsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 9 juni 2025
Rafbók: 9 juni 2025
DI GINA HARTE SERIES

















